Réttur litur er lykillinn að náttúrulegri útkomu. Svona finnur þú lit, tón og litatækni sem passar þínu hári.
Réttur litur á hárlengingum er lykillinn að náttúrulegri og samfelldri útkomu. Besti liturinn fer eftir núverandi hárlit, tóninum í hárinu og útkomunni sem þú vilt ná.
Leiðir til að finna rétta litinn
Skoðaðu litaprufurnar
Á hverri vörusíðu sérðu alla liti sem varan fæst í. Hver litur hefur stutta lýsingu á tóni og undirtóni.
Pantaðu litaprufur
Litaprufur eru öruggasta leiðin til að finna nákvæmlega réttan lit. Berðu þær saman við þitt eigið hár í dagsbirtu áður en þú velur lengingarnar.
Komdu í ráðgjöf
Hársnyrtar Vidoré hjálpa þér að velja lit út frá hárlit, tóni og þeirri útkomu sem þú vilt. Bókaðu tíma á Krókhálsi 6.
Áður en þú byrjar
1. Viltu fyllingu eða sídd?
Þegar þú bætir við fyllingu blandast öll sídd lenginganna við þitt eigið hár. Það gefur meira svigrúm í litavali og smá munur á tóni getur jafnvel gefið fallega, náttúrulega dýpt.
Þegar þú bætir við sídd skiptir meira máli að lengingarnar passi við lengdirnar – sérstaklega endana. Neðsti hluti hársins verður að mestu lengingar svo skilin þurfa að vera eins samfelld og hægt er.
2. Aðferðin skiptir máli
Þegar festingarnar eru faldar í hárinu þarf aðallega að passa lengdir og enda. Fyrir sýnilegri stykki eins og clip-in topp þarf liturinn að passa bæði við rót og lengdir. Fyrir tagl skiptir mestu að liturinn passi þar sem það er fest – við rót þíns eigin tagls.
3. Einn litur eða fleiri?
Ef hárið þitt er með strípum, balayage eða náttúrulegum blæbrigðum getur samsetning fleiri lita gefið eðlilegri útkomu. Með því að blanda tveimur eða fleiri litum líkirðu eftir náttúrulegum breytileika í hárinu og færð dýpt.
4. Hversu oft litarðu hárið?
Ef þú litar hárið reglulega geturðu valið lengingar sem passa núverandi lit. Ef þú litar sjaldnar er oft betra að velja lit sem fellur vel að hárinu líka þegar rótin vex fram.
Skoðaðu hárið frá rót að enda
Skoðaðu hárið alltaf í dagsbirtu – innilýsing getur skekkt bæði tón og dýpt. Helst ætti hárið að vera slétt því krullur geta látið litinn virðast fjölbreyttari en hann er. Algeng mistök eru að velja lit sem manni líkar frekar en lit sem raunverulega passar við hárið.
- Jafn litur frá rót að enda: veldu heilan lit (solid).
- Strípur eða mjúk blæbrigði: veldu highlights, mix eða balayage.
- Dekkri rót og ljósari lengdir: veldu root-lit.
- Dekkri rót með mjúkum skilum í lengdunum: veldu ColorMelt.
- Jafn stigull frá dökku í ljóst: veldu ombre.
Litatæknin útskýrð

Balayage
Liturinn er málaður frjálst á hárið sem gefur náttúrulegt, sólkysst útlit. Balayage byrjar yfirleitt með lengri, dekkri rót og mjúkum skilum yfir í ljósari lengdir, án skarpra lína.
Highlights
Lokkar eru lýstir til að skapa andstæður og dýpt. Aðferðin gefur birtu og dýpt með því að draga fram ákveðna hluta hársins.
Root
Dekkri tónn við rótina sem blandast smám saman yfir í ljósari lit í endunum. Líkir eftir náttúrulegum hárvexti.
ColorMelt
Styttri og skýrari rót sem fer yfir í mjúkar strípur í miðlengdinni og dofnar í ljósari enda.
Ombre
Einn litur sem rennur saman við annan. Öll ombre-litbrigði Rapunzel byggja á tveimur litum úr litakortinu sem bráðna saman.
Solid
Einn litur í allri lengingunni sem gefur jafnt og stílhreint útlit.
Hlýr, kaldur eða hlutlaus tónn?
Réttur litur snýst ekki bara um hversu ljós eða dökkur hann er heldur líka um undirtóninn. Skoðaðu miðlengd og enda í dagsbirtu. Hafðu í huga að skjáir og lýsing geta haft áhrif á hvernig litir birtast.
- Hárið virðist öskutóna, ískalt eða gráleitt: kaldur tónn. Veldu liti með köldum litarefnum eins og ösku.
- Hárið virðist gyllt, hunangslitað eða koparlitað: hlýr tónn. Veldu liti með hlýjum litarefnum.
- Hvorki greinilega hlýtt né kalt: hlutlaus tónn. Bæði hlýir og kaldir litir geta hentað.
Áttu erfitt með að greina það? Gull skart fer oft hlýjum undirtóni og silfur köldum. Ef æðarnar á úlnliðnum virðast bláar eða fjólubláar ertu líklega með kaldan undirtón en grænar æðar benda til hlýs.






















































