Námskeið í hárlengingum
Viltu verða fagmaður í Rapunzel hárlengingum? ViDoré býður upp á kvöld- og helgarnámskeið fyrir fagfólk sem vill bæta hárlengingum við þjónustu sína.
Skrá mig á námskeið
Viðurkennd réttindi
Á námskeiðunum lærir þú tæknina við að setja fastar hárlengingar í viðskiptavin, þar á meðal tape-in, saumað weft og nail wax hár.
- Heildstætt námskeið í hárlengingum
- Tape-in, saumað weft og nail wax hár
- Viðurkennd réttindi sem Rapunzel hárlengingafagmaður
- Leyfi til að selja Rapunzel hárlengingar
Í náminu er farið yfir
- Uppruna og mikilvægar upplýsingar um Rapunzel of Sweden
- Grunnatriði hárlenginga og þykkingar á hári
- Grunnatriði í límtækni á æfingahöfði (tape-in)
- Ráðgjöf fyrir uppsetningu lenginga
- Ákvörðun á litavali
- Mismunandi aðferðir við ísetningu
- Hvernig hár viðskiptavina og lengingarnar eru klipptar
- Hvernig á að fjarlægja hárlengingar – það sem má og má ekki
- Ráðleggingar um verðlagningu og ráðgjöf við viðskiptavini
- Lagfæringu á hárlengingum í endurkomu
- Bókunarkerfi
- Hvernig panta á lengingar fyrir viðskiptavini úr heildsölu
Innifalið í námskeiði
- Öll tæki og tól fyrir fagaðila í hárlengingum
- Byrjendapakki til að taka að sér viðskiptavini
- Heildsöluaðgangur að vefverslun vidore.is
- Lengingar og kennsluhöfuð til að æfa ísetningu