Hár sem lítur út eins og þitt eigið
ViDoré Hárstudio er hársnyrti- og hárlengingastofa á Krókhálsi sem leggur áherslu á hágæða hárlengingar úr ekta hári frá Rapunzel of Sweden.

Sagan okkar
Velkomin á Vidoré
ViDoré Hárstudio er hársnyrti- og hárlengingastofa sem leggur áherslu á hágæða hárlengingar úr ekta hári frá Rapunzel of Sweden. Við leggjum áherslu á fagmennsku, góða þjónustu og kennslu hársnyrtifagmanna í formi námskeiða.
Trúnaður og fagmennska
Fyrirtækið var stofnað árið 2022. ViDoré er opinber dreifingaraðili Rapunzel of Sweden á Íslandi, en hárlengingarnar eru allar gerðar úr ekta hári frá fólki sem gefur hárið sitt til annarra.
Við leggjum mikla áherslu á fagmennsku og gæði. Á ViDoré starfa eingöngu löggiltir hársnyrtar sem tryggja að þú fáir þá þjónustu sem þú átt skilið.
Sérhæfð hárlengingaþjónusta
Við bjóðum upp á fjölbreyttar aðferðir við hárlengingar, þar á meðal tape-in, weft og nail hair. Við seljum einnig clip-in hárlengingar og tögl frá Rapunzel of Sweden fyrir þau sem vilja þægilega og einfalda lausn heima – fullkomið til að bæta við sídd, þykkt eða hreyfingu í hárið.
Teymið
Á ViDoré starfa einungis löggiltir, faglærðir hársnyrtar, förðunarfræðingar og sérfræðingar í hárlengingum.
Opinber söluaðili Rapunzel of Sweden á Íslandi
Vörurnar koma beint frá framleiðanda, með sömu gæðum, litum og síddum og í verslunum Rapunzel erlendis.
Skoða vörurnar
Teymið
Agnesa
Hildur
Harpa Lind
Berglind Stella
Andrea Dís
Karen Ívars
Klara Ívars
Hafdís Óskars
SóleyKomdu í heimsókn
Krókháls 6 (Stuðlaháls megin, í portinu) 110 Reykjavík
- Mánudaga – föstudaga
- 09:00–17:00
- Laugardaga
- Lokað
- Sunnudaga
- Lokað
- Sími
- 537-9757